Þjónusta

Fyrir bændur

Við leggjum áherslu á að geta veitt bændum góða þjónustu sem byggir á faglegri þekkingu og stuttum viðbragðastíma. Okkar reynsla í ,,útipraksís” er byggð á víðtækri þekkingu og reynslu mannauðs okkar. 

Góð samskipti við bændur og þjónusta við dýr þeirra er okkur mjög mikils virði. Þess vegna er okkur mikið í mun að halda úti vel mönnuðum vöktum svo bændur geti nýtt sér okkar þjónustu hvenær sólarhringsins sem er.tutt

HEstar

Á Stuðlum er góð aðstaða til aðgerða og skoðana á hrossum. Sem dæmi um fjölbreyttni starfseminnar má nefna heilbrigðisskoðanir, sónarskoðanir ofl. 

Góð aðstaða er einnig til innlagnar vegna sjúkdóma, slysa eða aðgerða á hrossum. 

smádýr

Á  Stuðlum er mjög góð aðstaða fyrir allar helstu aðgerðir smádýra. Við erum vel tækjum búin og metnaðarfull í stórum sem smáum verkefnum. 

 Dæmi um algengar aðgerðir á dýraspítala eru bólusetningar, ormahreinsanir, eyrnaskolun, sónar, röntgenmyndatökur, tannhreinsun, tannlækningar, speglun, blóðrannsóknir, fæðingahjálp, sjúkrainnlögn, og árleg heilsufarsskoðun.

Hér finnur þú verðskrána okkar.
verðskrá 1. des 22